Kristrún Frostadóttir
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Vera og Helgi um danskar fótboltabullur og útdauð dýr sem reisa á upp frá dauðum.
Matvælastofnun hefur að sögn staðfest grun sinn um að svokallaðar sýklalyfjaónæmar bakteríur hafi fundist í svínum sem tekin voru til slátrunar nýverið. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar bakteríur greinast í búfé á Íslandi, en þær eru mjög útbreiddar í búfé í Evrópu og víðar. Guðrún Hulda Pálsdóttir flutti pistil um þetta.
Alma Möller heilbrigðisráðherra var gestur Morgungluggans í seinni hluta þáttar, og ræddi ófagrar lýsingar á stöðu mála í heilbrigðiskerfinu, eins og hún birtist í hverri skýrslu Ríkisendurskoðunar á fætur annarri.
Tónlist:
Fever - Aldous Harding

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.