Kristrún Frostadóttir
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Vera og Helgi um danskar fótboltabullur og útdauð dýr sem reisa á upp frá dauðum.
Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður er nýkominn heim frá Sviss þar sem EM kvenna í knattspyrnu fer fram. Hann sagði frá mótinu, og öðru umdeildu fótboltamóti sem lauk í gær í Bandaríkjunum, HM félagsliða.
Það hyllir undir þinglok og veiðigjaldsfrumvarpið mun að öllum líkindum fara í gegn. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga eru meðal þeirra sem gagnrýnt hafa frumvarpið, og telja miðað við fréttir helgarinnar, enn
ekki nóg gert til að koma til móts við þá gagnrýni. Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í Skagafirði, er varaformaður samtakanna, hann var á línunni.
Tónlist:
Do-re-mi - Woody Guthrie
Ex fan des sixties - Jane Birkin

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.