
Morgunglugginn
Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.
Jón Knútur Ásmundsson fjallaði um það hvernig við minnumst hersetunnar á stríðsárunum, og hlið þeirrar sögu sem sjaldan er rædd: dauðsföll Íslendinga í landi vegna slysa og atvika tengdra setuliðinu. Hann sagði frá rannsóknum Gauta Páls Jónssonar sagnfræðings, sem hefur fundið að minnsta kosti nítján tilfelli þar sem Íslendingar létust í slíkum slysum.
Í síðari hluta þáttarins var Silja Bára R. Ómarsdóttir gestur Morgungluggans. Hún tók við starfi rektors Háskóla Íslands í byrjun vikunnar. Hún sagði frá áskorunum háskóla- og fræðasamfélagsins hér heima og á heimsvísu og starfinu sem framundan er.
Tónlist:
Vegir liggja til allra átta - Ellý Vilhjálms
Við spilum endalaust - Sigur rós

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.