Kristrún Frostadóttir
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Vera og Helgi um danskar fótboltabullur og útdauð dýr sem reisa á upp frá dauðum.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu kemst ekki upp úr sínum riðli á EM eftir tap gegn Sviss. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður er í Sviss og fór yfir leik gærdagsins og það sem framundan er hjá liðinu.
Fyrir helgi bárust fréttir af því að Bubbi Morthens hefði selt höfundarverk sitt: ríflega 800 lög og texta, yfir 50 hljómplötur, sem og réttinn til að nýta nafn Bubba og útlit, eins og sagði í fréttatilkynningu. En hvað þýðir þetta? Bubbi Morthens var gestur Morgungluggans:
Tónlist:
Leiðin heim - Lights on the Highway

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.