Kvöldfréttir útvarps

Utanríkismál, gosmóða, þjóðernissinnar og lögreglan, erfiðar aðstæður við sjúraflug, grunnskóli fyrir einhverf börn

Yfirlýsing Íslands og Evrópusambandsins um öryggis- og varnarmál hefur ekkert með þau mál gera heldur snýst hún bara um pólitík, segir formaður Framsóknarflokksins. Utanríkisráðherra segir Ísland líkt og aðrar Evrópuþjóðir rísi upp og treysti stoðir í varnarmálum.

Mengunin frá eldgosinu er töluvert meiri, víðförlari og þaulsætnari en áður hefur sést frá gosstöðvunum á Reykjanesskaga.

Hópur fólks sem kallar sig Skjöldur Íslands gekk um miðbæ Reykjavíkur á föstudagskvöld og segist ætla standa vörð um framtíð Íslands. Lögregla varar við einstaklingar eða hópar taki sér lögregluvald á eigin forsendum.

Flugvél Landhelgisgæslunnar þurfti finna gat í þokunni svo þyrla gæslunnar gæti sótt veikan farþega á skemmtiferðaskipi við suðurströnd landsins síðdegis.

Kona sem keyrði of hratt í hálku á sumardekkjum hefur verið dæmd fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi.

Móðir fimm ára drengs á einhverfurófi stendur stofnun sérhæfðs grunnskóla fyrir einhverf börn í samstarfi við bæjaryfirvöld í Garðabæ.

Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Erna Sóley Ásgrímsdóttir

Frumflutt

21. júlí 2025

Aðgengilegt til

21. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,