Mannlegi þátturinn

Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar

Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu.

Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur upp sumarhret á sama tíma í fyrra og ekki síst hitteðfyrra.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Birna Hjaltadóttir kennari í Brúarskóla við Dalbraut, en hún er einnig með meistaranám í ritlist. Við fengum hana til segja okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Frumbyrjur e. Dag Hjartarson

Huldukonan e. Fríðu Ísberg

Formaður húsfélagsins e. Friðgeir Einarsson

Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftir á e. Höllu Birgisdóttur

Jakobína, saga skálds og konu e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur.

Salka Valka e. Halldór Laxness

Tónlistin í þættinum:

Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith & Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson)

Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson)

Northern Sky / Nick Drake (Nick Drake)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Birt

26. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,