Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

NÚ grunnskóli, Anna Rósa grasalæknir og veðurspjallið

Við heyrum stöðugt fréttir af afleiðingum snalltækja og samfélagsmiðla á okkur og kannski ekki síst yngstu kynslóðirnar, sem þekkja ekki annan veruleika en að þessi tæki eru alls staðar í seilingarfjarlægð og allir eru alltaf sítengdir við netið. Þetta hefur auðvitað haft áhrif á til dæmis skólahald og því var áhugavert að kynnast aðeins NÚ grunnskólanum sem er í Hafnarfirði sem leggur mikla áherslu á heilsu og núveru. NÚ grunnskólinn byrjar til dæmis seinna á morgnanna en aðrir skólar og allir dagar byrja á íhugun og núvitundaræfingum. Við fengum þá Dag Björgvin Jónsson, nemanda í 10. Bekk, og Kristján Ómar Björnsson, heilsustjóra og eiganda skólans, til að segja okkur meira frá skólanum og starfsemi hans í þættinum í dag.

Anna Rósa grasalæknir kom til okkar í dag en hún er nýbúin að stofna góðgerðarsamtökin Lífgrös, www.lifgros.is, sem hafa þann tilgang að kenna konum í flóttamannabúðum í Írak að búa til vörur úr jurtum, bæði til eigin nota og til að afla tekna. Hún rekur verkefni í þremur flóttamannabúðum í Írak og er nýkomin heim frá Írak eftir mánaðardvöl við kennslu. Anna Rósa sagði okkur frá þessu í dag.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjall og í þetta sinn talaði hann um loftslagsmálin í kjölfar samantektar vísindanefndar um loftslagsmál frá í október og umfjöllum um hitabreytingar á Íslandi síðustu áratugi. Hann talaði til dæmis um hvernig árið 2023 er að koma út hér á landi í sambandi við meðalhita, hversu erfiðlega gengur að standa við markmið Parísarsamkomulagsins frá 2015 og sitthvað fleira.

Tónlist í þættinum í dag:

Söknuður / Roof Tops (erl.lag - Stefán G Stefánsson)

Nha Fidjo matcho / Ildo Lobo

Oil gusher / Raymond Scott Quintet (Raymond Scott)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,