
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og tónlistarkona sem búsett er í Svarfaðardal er búin að gefa út glænýjan geisladisk með 10 frumsömdum lögum, flest samin við ljóð skáldkvenna. Við hittum Kristjönu á kaffihúsi í miðvænum á Akureyri og spjölluðum við hana um tónlistina og heima og geima.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og hann kemur víða við í póstkortinu að þessu sinni. Hann byrjar á að tala um veðrið og veðrametin í Eyjum. Því næst talar hann um samgöngur og leggur leið sína til Sviss en þar þykja samgöngur til fyrirmyndar. Svo liggur leiðin til Svalbarða en þar hefur stríðið í Úkraínu haft versandi áhrif á sambúð rússa og norðmanna. Rússar reka þarna kolanámu og eru farnir að sýna norskum yfirvöldum hroka og vanvirðingu.
Tónlist:
Á sjó/Hljómsveit Ingimars Eydal,Þorvaldur Halldórsson syngur(erl-Ólaf Ragnarsson)
Máninn/Kristjana Arngrímsdóttir(Kristjana Arngrímsdóttir-Halla Eyjólfsdóttir)
Útþrá/Kristjana Arngrímsdóttir( Kristjana Arngrímsdóttir-Elísabet Geirmundsdóttir?Listakonan í fjörunni?)

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.