16:05
Síðdegisútvarpið
Reykjanesbrautin, flugbætur og haustlaukar

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þegar Vegagerðin fékk afhenta nýja tvöföldun Reykjanesbrautarinnar nærri Straumi var óklárað verk að aðskilja með vegriði beggja vegna ljósastaura sem eru nú á milli gagnstæðra átta á gamla kaflanum til Suðurnesja. Hlustandi Síðdegisútvarpsins og tíður vegfarandi Reykjanesbrautarinnar benti okkur á þetta. Við fengum Ólaf Guðmundsson umferðarsérfræðing til að kynna sér málið. Hann kom til okkar og greindi frá sínu áliti.

Allsherjarverkfall flugvirkja skellur að óbreyttu á aðfaranótt miðvikudags. Ólíklegt er að samningar náist fyrir þann tíma en ríkissáttasemjari segir engan fund hafa verið boðaðan milli deiluaðila fyrir þann tíma. En hvað þýðir þetta fyrir farþega? Hver er réttur þeirra þegar verkfallið hefur áhrif á bókaðar flugferðir? Veronika Steinunn Magnúsdóttir, hjá Farbótum, kom til okkar.

Vísa þurfti minnst 40 manns frá bíósýningu í Valhöll á Eskifirði og mun það ekki vera algengt. Um þriðju sýningu var að ræða á nýrri íslenskri heimildarmynd sem ber heitið Fuglar (og menn). Tveimur aukasýningum hefur þegar verið bætt við. En afhverju er þessi heimildarmynd svona vinsæl á svæðinu? Og ekki bara þar því hún er önnur aðsóknarmesta kvikmynd landsins segir Ingvar Þórðarson einn leikstjóra myndarinnar. Hann kom til okkar.

Bíllausi dagurinn er á morgun og þá er frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu. Félagið Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til að taka þátt, leggja bílnum og nýta sér fjölbreytta ferðamáta. Bíllausi dagurinn slær botninn í evrópska samgönguviku sem hófst þann 16. september síðastliðinn. Við fengum til okkar Markús Vilhjálmsson forstöðumann þjónustu og sölu hjá félaginu.

Forsætisætisráðherra sagði aðspurð á morgunverðarfundi í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli 22. maí 2025 styðja heilshugar það að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Síðan hefur lítið gerst og fjármagn ekki tryggt í þetta verkefni hvorki í fjárlögum fyrir 2026 né í nýjum fjárlögum fyrir 2027. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur barist ötullega fyrir þessu máli. Hann fór yfir stöðuna með okkur.

Nú er komið haust sem þýðir bara eitt, það er orðið tímabært að undirbúa garðana fyrir vorið og gróðursetja haustlaukana! Best er að setja laukana niður fyrir fyrstu frost, þá annað hvort núna í september eða október. Sverrir Gauti Svavarsson garðyrkjuáhrifavaldur kom og gaf nokkur góð ráð.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,