Flugur

Leyft öllum aldurshópum

Lög við ljóð nokkurra skáldkvenna

Leikin eru lög við ljóð nokkurra skáldkvenna. Fyrsta lagið er að vísu þjóðlag en ljóði er Fagur er í Fjörðum eftir skáldkonuna Látra Björgu. Rósa Kristín Baldursdóttir syngur. Lay Low flytur eigið lag við ljóðið Sorgin eftir vestur-íslensku skáldkonuna Undínu og Sigfús Pétursson syngur Til mömmu, ljóð sem Undína orti en lagið er eftir Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum. Síðan koma nokkrar þulur og ljóð eftir Theódóru Thoroddsen. Þorvaldur Davíð Kristjánsson flytur lag Stefáns S. Stefánssonar við Tunglið, tunglið taktu mig, Unnur Birna Björnsdóttir flytur eigið lag við þuluna Gekk ég upp í Álfahvamm og Þuríður Pálsdóttir syngur lag Karl O. Runólfssonar við þuluna Kom ég þar að kveldi. Eyjólfur Guðmundsson og Margrét G. Thoroddsen flytja tvö lög Eyjólfs, annarsvegar við ljóði' Reynisdrangar og hinsvegar Kvöldljóð eftir Theódóru. Lokalag þáttarins er Kenndu mér sem dúettinn Þau flytur, en ljóðið er eftir Ólöfu frá Hlöðum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,