Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda. Fyrsta lag þáttarins er Þú veist í hjarta þér eftir skáldið og lagasmiðinn Þorstein Valdimarsson. Síðan hljóma nokkur lög við ljóð Guðmundar Böðvarssonar. Það eru lögin Völuvísa eftir Auði Haraldsdóttur og Sigurð Rúnar Jónsson, Rauði steinninn eftir Guðmund Hauk Jónsson, Kyssti mig sól eftir Ása í Bæ og Vögguvísa eftir Ingunni Bjarnadóttur. Síðan eru leikin tvö lög við ljóð eftir Böðvar son Guðmundar,en það eru lögin Næturljóð úr Fjörðum og Vöggukvæði róttækrar móður. Þá hljóma lög við tvö ljóð eftir Jakobínu Sigurðardóttur, Hvað tefur þig bróðir? eftir Berg Jón Þórðarson og Fimm börn eftir Ingólf Steinsson. Þessu næst syngur Bergþóra Árnadóttir eigið lag við ljóð Gunnars Dal, sem heitir Hvert afrek bróðir ætlar þú að vinna? Síðasta lagið er eftir Tómas R. Einarsson, samið við Næturljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.