Kvæði Jóns Thoroddsen sungin
Leikin eru nokkur lög þar sem kvæði Jóns Thoroddsen sýslumanns og rithöfundar eru í forgrunni. Andrea Gylfadóttir og Tríó Björns Thoroddsen flytja lagið Ísland (Ó, fögur er vor fósturjörð)…
Sólskinspoppið rataði til Íslands án þess að hugtakið sjálft fengi einhverja athygli. Meðal þeirra sem hljóðrituðu erlend sólskinspopplög með íslenskum textum voru Björgvin Halldórsson, Hljómar, Elly og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn, Hljómsveit Ingimars Eydal og Þuríður Sigurðardóttir. Þannig læddi þessi tónlist sér inn á íslenskan plötumarkað án þess að sérstaklega væri tekið eftir því. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.