16:05
Víðsjá
Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru með verk á sýningunni.

Sjöfn Hauksdóttir rýnir í leikverkið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson sem sýnt er í Kassanum um þessar mundir.

Og við hugum að góðvini jafnt sem óvini þáttar Bob Dylan.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,