Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Open up my window - Cristopher Cross
Margt á manninn lagt - Moses Hightower - Önnur Mósebók 2012
Maður og kona - erl lag/Jenni Jóns - Sigurður Ólafsson og Soffía Karlsdóttir með tríói Jans Móravek.
Meiriháttar - Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Drangar 2025
Hunting high and low - Aha 1985
Barcarole - Jaques Offenbach
Sailing - Cristopher Cross
Sumarinnslög Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar. Frisbígolf í Grafarholti. Svandís Halldórsdóttir kennir Þorkeli sportið
God only knows - Brian Wilson - Ari Bragi Kárason og Eyþór Gunnarsson
Ljóð dagsins: Ísland, eftir Grím Thomsen. Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir les
Ísland er land þitt - Margrét Jónsdóttir/Magnús Þór Sigmundsson - Pálmi Gunnarsson syngur
Um daginn og veginn Gunnar Benediktsson 20. október 1947. Gunnar ræðir bæði veðurfar og skólamál. Ekki síst áhyggjur sínar af áhrifum kvikmynda á ungdóminn.
Accla Taqui = Söngl hinna völdu meyja - Yma Sumac með hljómsveit Les Baxter
Mercy - Guðmundur Pétursson - Wandering Beings 2024
Can you please crawl out your window? - Bob Dylan - Jimi Hendrix
Friends with benefits - Ari Bragi Kárason
Moon River - Henry Mancini - úts Veigar Margeirsson - Ari Bragi Kárason og Eyþór Gunnarsson
Hit me where it hurts - Ari Bragi Kárason

07:30

08:30
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta til og stefnir nú til Danmerkur þar sem hann verður prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn.

Veðurstofa Íslands.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Ein mynd segir meira en þúsund orð er frasi sem hefur gjarnan verið notaður yfir sterkar áhrifaríkar ljósmyndir, en í ár eru 200 ár liðin frá því fyrsta varðveitta ljósmyndin var tekin. Við forvitnuðumst um ljósmyndun í dag, en Fókus, félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999 og er í dag blómlegt félag. Stefán Hrafn Jónsson, formaður félagsins, er ástríðuljósmyndari og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá félaginu, ljósmyndaástríðunni og bara eins miklu ljósmyndatengt og við munum koma að á um það bil 15 mínútum.
Í Bæjarperlum vikunnar fer Hinrik Wöhler í Öræfasveit. Þar ræðir hann við Svanhvíti Helgu Jóhannsdóttur, sem hefur búið í Öræfum alla sína tíð. Hún er kennari við Fjallaskóla Íslands, leiðsögumaður og félagi í björgunarsveitinni Kára. Svanhvít ræddi um jöklana, gönguleiðirnar, ferðamennskuna og landslagið sem mótar lífið í Öræfum. Því næst kom Hinrik við á næsta bæ í Svínafelli hjá Regínu Hreinsdóttur. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið ferðaþjónustu um árabil og opnaði nýlega sveitakrána Nýja fjárhúsið í gömlu fjárhúsi.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hjarta mitt / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir)
There is a Light That Never Goes Out / The Smiths (Johnny Marr og Morrissey)
Misguided Angel / Cowboy Junkies (Margo Timmins og Michael Timmins)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Einar Mäntylä.

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Eygló Höskuldsdóttir Viborg er hámenntað tónskáld sem samið hefur ýmiskonar tónverk uppúr hljómrænum hugmyndurm og líka eftir pöntun. Hún á sér líka aukasjálf, Alter Eygló, sem fann sig á karókíbar í New York og semur karaókílög.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Annar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum sínum og eigin æskuárum.

Útvarpsfréttir.

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Umsjón: Felix Bergsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar þessa viku hefur Einar Mäntylä.

Hljóðritun frá 1989
Hljóðritun frá 1989
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Hjá vondu fólki. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Ein mynd segir meira en þúsund orð er frasi sem hefur gjarnan verið notaður yfir sterkar áhrifaríkar ljósmyndir, en í ár eru 200 ár liðin frá því fyrsta varðveitta ljósmyndin var tekin. Við forvitnuðumst um ljósmyndun í dag, en Fókus, félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999 og er í dag blómlegt félag. Stefán Hrafn Jónsson, formaður félagsins, er ástríðuljósmyndari og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá félaginu, ljósmyndaástríðunni og bara eins miklu ljósmyndatengt og við munum koma að á um það bil 15 mínútum.
Í Bæjarperlum vikunnar fer Hinrik Wöhler í Öræfasveit. Þar ræðir hann við Svanhvíti Helgu Jóhannsdóttur, sem hefur búið í Öræfum alla sína tíð. Hún er kennari við Fjallaskóla Íslands, leiðsögumaður og félagi í björgunarsveitinni Kára. Svanhvít ræddi um jöklana, gönguleiðirnar, ferðamennskuna og landslagið sem mótar lífið í Öræfum. Því næst kom Hinrik við á næsta bæ í Svínafelli hjá Regínu Hreinsdóttur. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni rekið ferðaþjónustu um árabil og opnaði nýlega sveitakrána Nýja fjárhúsið í gömlu fjárhúsi.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hjarta mitt / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir)
There is a Light That Never Goes Out / The Smiths (Johnny Marr og Morrissey)
Misguided Angel / Cowboy Junkies (Margo Timmins og Michael Timmins)
Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.
Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?
Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza
Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson
Grafík: Kolbrún Þóra Löve
Ljósmyndun: Ragnar Visage
ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans
Hvaða breytingar verða í íslenskum landbúnaði ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Bændurnir Steinþór Logi Arnarsson í Stórholti og Jóhanna Ösp Einarsdóttir frá Fremri Gufudal ræddu um þetta í þættinum. Hún vill segja já til að sjá en Steinþór telur að óvissa sem fylgi því að segja já í ágúst muni koma niður á bændum. Auk þess var rætt um niðurfellingu tolla, styrkjakerfið og innflutning lifandi dýra sem þau eru bæði mótfallin.

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Fjölmennur keppnishópur úr Dansskóla Birnu Björnsdóttur hélt í víking til Írlands á dögunum til þess að keppa á Heimsmeistaramótinu í dansi 2026 í Dyflinni! Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dansskóli Birnu sendir fulltrúa á mótið en í fyrra komu keppendur skólans reynslunni ríkari heim, með fjögur bronsverðlaun í farteskinu sem þá var besti árangur hópsins fram að þessu. Nadía Hjálmarsdóttir hefur bæði heimsótt mótið sem keppandi og kennari og í ár undirbjó hún fjölmarga keppendur og lagði upp mörg atriðanna með þeim. Og hvernig stóðu þau sig …? Nadía sagði okkur frá árangrinum í ár.
Pósthlaupið kallast spennandi utanvegahlaup sem haldið er í Dölunum og verður haldið nú í fimmta sinn næstkomandi laugardag, 25. júlí. Þá arka hlauparar á öllum aldri af stað um stórbrotna náttúru Dalanna, á nokkrum mislöngum hlaupaleiðum og sameinast í marki í Búðardal. Hlaupið, segja gárungar og þá helst hlaupaáhugafólk, eitt best geymda leyndarmálið í hlaupasenunni á Íslandi um þessar mundir. Við fræddumst um þetta best geymda leyndarmál hjá Ingibjörgu Jóhannsdóttur í Búðardal.
Síðustu vikurnar höfum við rætt við nokkra viðmælendur hér í Fram undan um þeirra skoðanir á þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhaldandi viðræður gagvart aðild Íslands að ESB. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði heimsótti þáttinn, fulltrúar frá Áfram Ísland, samtökum sem ætla að segja nei og fengum einnig þá hlaðvarpsbræður Markús og Pétur sem stýra Korter í ESB um þessar mundir. Einn af þeim sé réðst fram á ritvöllinn á dögunum, með grein sem bar yfirskriftina „Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur“ er hagfræðingurinn Eiríkur Ragnarsson og býr í Þýskalandi. Við hringdum í Eirík.
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur mögulega verið sá aðili sem ferðast hefur hve mest þetta sumarið en hann hefur verið duglegur að poppa upp í fjörðum og dölum og slá til tónleika í guðsgrænni náttúrunni. Við heyrðum í Mugison sem deildi meðal annars með okkur hálfótrúlegum sögum af sólbaug sem átti til að birtast fyrir ofan hann og trufla einbeitingu tónleikagesta.

07:30

08:30

Umsjón: Friðrik Ómar.


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.



Útvarpsfréttir.

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson