Myndin af manninum

1. þáttur

Myndin af manninum er fyrsti þáttur í fimm þátta röð Péturs Gunnarssonar rithöfundar, þar sem hann rekur sögu hugmynda um tilurð og þróun mannsins og stöðu hans í alheiminum, sem og tilurð og þróun alheimsins í sköpunarverkinu. Í leiðinni er hugað að brauðstriti mannsins og breyttri afstöðu til vinnunnar í tímans rás.

Lesandi ásamt umsjónarmanni er Guðrún Gísladóttir, leikkona.

Lesið úr eftirfarandi verkum: Lucy, the beginnings of humankind, eftir Donald Johanson ; Origins reconsidered, eftir Richard Leakey ; Náttúrusaga, eftir Jónas Hallgrímsson ; Ljóð 1947 - 1951, I, eftir Sigfús Daðason og annar lestur Guðrúnar á texta umsjónarmanns.

[Athugið : rannsóknir síðustu ára hafa breytt ýmsu af því sem þarna kemur fram].

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Myndin af manninum

Pétur Gunnarsson rekur sögu hugmynda um tilurð og þróun mannsins og stöðu hans í alheiminum í þáttaröð sinni frá árinu 2005.

,