21:30
Sagnaslóð
Lesið úr bókum eftir Hannes J. Magnússon

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Áfram er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar starfaði við Barnaskóla Akureyrar, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri á árunum 1947–1965.

Í þættinum er lesið úr bókum Hannesar Á hörðu vori, sem kom út hjá Norðra árið 1958, og Andardráttur mannlífsins, sem Bókaútgáfa Æskunnar gaf út árið 1968.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 16. apríl 2010

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 40 mín.
  • Endurflutt
,