
Bara bækur
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og merkingu hluta sem menn sanka að sér og hlaðast upp. Undir niðri eru líka skírskotanir í stórar hugmyndir um samfélagið og tengls manna við eitthvað stærra, við óræða drauma og hverfulleikann.
Og ljóðabókin Heiðríkja var að koma út hjá Ós Pressunni, fyrsta ljóðabók Miriam Petru Ómarsdóttur Awad sem áður hefur birt ljóð á netinu og smásögu í tímaritinu Stelk. Miriam yrkir um ástina þrána, hvort sem það er þrá eftir manneskju eða stað eða stund.
Og í lok þáttar setjumst við niður með Auði Övu Ólafsdóttur sem var að gefa út nýja skáldsögu hjá Benedikt og nefnist hún Tengdasonur Íslands. Það er samtímasaga um Valgerði og nöfnu hennar og barnabarn sem er ung kona í doktorsnámi í mannerfðafræði. Þeirra samband er sérstakt því þær standa nær einar eftir, þær hafa báðar misst marga nákomna og því er margt í húfi. Saman velta þær fyrir sér stóru spurningunum um dauðann, tilgang og trú og hvort siðferði sé arfgengt? Hvað er í blóðinu okkar? Tengdasonur Íslands er líka sneiðmynd af gamla Íslandi, Íslandi stríðsáranna og ástarblossa ömmu Valgerðar með útlenskum manni. Nýja bók Auðar fjallar um það hvaðan við komum og hver má vera - það þarf mögulega að minna okkur stöðugt á að við erum komin af öllum þeim sem á undan hafa farið.
Viðmælendur: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Auður Ava Ólafsdóttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.