1. Hjartalag
Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda.
Í þessum þætti er fjallað um hjartað sem líffæri og hlutverk þess skoðað með augum læknisfræðinnar. Einnig er kafað ofan í hjartað sem miðlægt tákn í kristinni trú.
Viðmælendur: Karl Andersen og Sigríður Guðmarsdóttir.

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir leggur upp í leiðangur um hjartað sem líffæri og menningarsögulegt fyrirbæri eftir að hafa sjálf upplifað skyndileg hjartveikindi. Hún rekur táknræna merkingu hjartans frá fornu fari til samtímans og fær til sín fjölmarga viðmælendur til að varpa ljósi á ólíkar birtingarmyndir hjartans, sem hún fléttar saman við eigin reynslu.