07:03
Morgunvaktin
Tollar, Evrópumál og heilabilun

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Bandaríkjastjórn notar tolla og hótanir um tolla í pólitískum tilgangi. Tollar hafa um aldir verið notaðir til tekjuöflunar, en þar til nýverið hafa þjóðir heims lagt mikla vinnu í að lækka tolla og draga úr viðskiptahindrunum. Við ræddum um tolla, í sögulegu samhengi og stöðuna sem núna er uppi, við Þórólf Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel fór meðal annars yfir heimsókn Marks Carney, forsætisráðherra Kanada, til Brussel í síðustu viku, og fréttir frá Noregi, þar sem stjórnvöld ætla að breyta því hvernig þau eiga við EES samninginn.

Í dag er alþjóðlegur dagur Alzheimer. Guðlaugur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri samtakanna Heilahjálp, sem áður voru Alzheimer samtökin, kom í þáttinn. Samtökin beina sjónum sínum í dag að hlutverki og stöðu aðstandenda fólks með Alzheimer.

Tónlist:

Voice Boys - Och kanske är det natt.

Waits, Tom - On a foggy night.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,