18:10
Spegillinn
Umbrotatímar í þýskum stjórnmálum, lóðamál trúfélaga og breytt staða Svalbarðabúa

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Katastrófa er hugtakið sem hvorutveggja þýskir stjórnmálaskýrendur og Friedrich Merz Þýskalandskanslari nota um úrslit þingkosninganna í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern í gær. Með því er í senn átt við sögulega mikið fylgi þjóðernisöfgaflokksins Alternative für Deutschland, AfD, og enn frekar þá staðreynd að flokkur kanslarans, Kristilegir demókratar, CDU, náðu ekki inn manni, í fyrsta sinn í sögunni.

Jóhanna Ýr Bjarnadóttir stjórnmálafræðingur í Berlín ræðir stöðuna í þýskum stjórnmálum við Ævar Örn Jósepsson.

Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér.

Rúnar Pálmason kynnti sér málið og talaði við Öldu Völu Ásdísardóttur hjá Ásatrúarfélaginu.

Norrænir ríkisborgarar, þar á meðal Íslendingar, hafa getað öðlast norskan ríkisborgararétt eftir búsetu á Svalbarða án þess að hafa búið á norska meginlandinu - en nú gæti það breyst. Ástrós Signýjardóttir fjallar um þettal

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Rúnar Pálmason.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,