Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Á fimmtudaginn næsta verður boðið upp á kvöldgöngu í miðborg Reykjavíkur þar sem yfirskriftin er Frá steinbænum í Unuhús - Reykjavík og Halldór Laxness og þar ætlar Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðingur og höfundur ævisögu Halldórs Laxness, leiða göngufólk um slóðir ævi og verka Halldórs í miðbæ Reykjavíkur. Sagt verður frá fæðingarstað skáldsins og nokkrum stöðum í miðbænum þar sem hann bjó ungur eða var tíður gestur. Halldór Guðmundsson var gestur Fram undan í morgunsárið.
Á meðan þokuslæða, dumbungur og væta hefur einkennt síðustu daga suðvestan- og vestantil á landinu þá hefur sólin skinið hjá íbúum fyrir austan. Tjaldsvæðin hafa verið afar þéttsetin á Suðaustur- og Austurlandi um helgina og víða var erfitt að finna pláss til að hola niður tjaldi. Það er því spurning hvernig tókst til hjá heimamönnum að taka á móti þessum fjölda og hvort innviðir hafi haldið. Jóna Árný Þórðardóttir er bæjarstjóri Fjarðabyggðar og var á línunni hjá okkur.
Lýðskólinn á Flateyri hefur skapað sér sess í námsflóru þjóðarinnar en allt frá árinu 2017 hefur skólinn boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir sem tengjast samfélaginu, náttúrunni og hvers konar sköpun. Um áratugaskeið höfðu tugir Íslendinga á ári hverju farið til einhverra annarra Norðurlanda til þess að leggja stund á nám við lýðskóla en nú falla öll vötn til Önundarfjarðar þar sem Lýðskólinn flytur senn í sitt eigið húsnæði. Við heyrðum í Margréti Gauju Magnúsdóttur skólastjóra Lýðskólans.
Íslensk ferðaþjónusta hefur verið í stöðugum vexti og örri þróun síðasta áratuginn og samkvæmt vorskýrslu Kjaratölfræðinefndar er ferðaþjónusta sú atvinnugrein þar sem framleiðni jókst mest á síðasta áratug. Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og segir hann í nýlegri grein sem hann birti á dögunum, að þrátt fyrir þetta sé stöðugt rekstrarumhverfi ekki fyrir hendi og ferðaþjónustan hljóti reglulega skatta og skattahækkanir sem leggjast á atvinnugreinina. Jóhannes ræddi stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu.
Við urðum vitni að rafmögnuðum úrslitaleik á HM í knattspyrnu í gær sem leikinn var í New Jersey. Heimsmeistaramóti 48 þjóða sem léku í Bandaríkjunum, Kanada og Mexikó og hófst 11. júní er nú lokið, 104 leikir að baki og það urðu Spánverjar sem stóðu uppi sem heimsmeistarar. Anna Sigrún Davíðsdóttir íþróttafréttakona rak endapunktinn í umfjöllun okkar um mótið hér í Fram undan.
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson fagnaði í dag fimmtugsafmæli sínu. Fyrir utan að halda upp á afmælið með hefðbundnum og óhefðbundnum veisluhöldum þá kemur út eftir hann ný bók, Kistan og fleiri sögur. Fyrsta bók Ragnars kom út 2009 og hefur hann fylgt henni eftir með nýrri útgáfu nánast á hverju ári síðan þá. Við hringdum í afmælisbarnið og forvitnuðumst um tímamótin og nýja smásagnasafnið.
