Sumartónleikar

Leitin að kantor í Leipzig - Sumartónleikar í Skálholti

Hljóðritun frá tónleikum Kammersveitarinnar Elju á Sumartónleikum í Skálholti 5. júlí sl..

Tónleikarnir báru yfirskriftina „Leitin kantor í Leipzig“ og tók efnisskráin mið af stöðu Tómaskantorsins í Leipzig árið 1723. Leikin var tónlist eftir Johann Kuhnau, sem var kantor kirkjunnar á undan Bach, Georg Philipp Telemann sem var fyrsti kostur, og svo eftir þann sem fékk lokum starfið; Johann Sebastian Bach.

Einleikarar: Semballeikarinn Flóra Fábri og flautuleikarinn Björg Brjánsdóttir.

Einsöngvari: Benedikt Kristjánsson, tenór.

Á efnisskrá:

-In te Domine speravi, kantata fyrir hljómsveit og sópran (sungið af tenór) eftir Johann Kuhnau.

-La Bizarre, hljómsveitarsvíta eftir Georg Philipp Telemann.

-Brandenborgarkonsert nr. 5 eftir Johann Sebastian Bach.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Birt

19. júlí 2026

Aðgengilegt til

19. ágúst 2026

Sumartónleikar

Þættir

,