19:00
Sumartónleikar
Leitin að kantor í Leipzig - Sumartónleikar í Skálholti

Hljóðritun frá tónleikum Kammersveitarinnar Elju á Sumartónleikum í Skálholti 5. júlí sl..

Tónleikarnir báru yfirskriftina „Leitin að kantor í Leipzig“ og tók efnisskráin mið af stöðu Tómaskantorsins í Leipzig árið 1723. Leikin var tónlist eftir Johann Kuhnau, sem var kantor kirkjunnar á undan Bach, Georg Philipp Telemann sem var fyrsti kostur, og svo eftir þann sem fékk að lokum starfið; Johann Sebastian Bach.

Einleikarar: Semballeikarinn Flóra Fábri og flautuleikarinn Björg Brjánsdóttir.

Einsöngvari: Benedikt Kristjánsson, tenór.

Á efnisskrá:

-In te Domine speravi, kantata fyrir hljómsveit og sópran (sungið af tenór) eftir Johann Kuhnau.

-La Bizarre, hljómsveitarsvíta eftir Georg Philipp Telemann.

-Brandenborgarkonsert nr. 5 eftir Johann Sebastian Bach.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Er aðgengilegt til 19. ágúst 2026.
Lengd: 1 klst. 6 mín.
e
Endurflutt.
,