22:08
Sumarmál
Axel Sæland formaður Félags garðyrkjubænda, Hafnarborg safn vikunnar og fugl dagsins

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þessa dagana er brakandi ferskt grænmeti að koma í verslanir frá garðyrkjubændum landsins. Við gleðjumst eðlilega enda fátt betra en grænmeti sem hefur ekki verið flutt langa leið áður en það kemst á disk neytenda. Svo er það líka svo hollt. Sumt er ræktað á Íslandi allan ársins hring en annað er árstíðabundið. Axel Sæland, formaður Félags garðyrkjubænda, var gestur þáttarins í dag.

Svo var það safn vikunnar sem í þetta sinn var Hafnarborg. Hólmar Hólm, verkefnastjóri kynningarmála og útgáfu kom og sagði okkur frá því hvað er á döfinni þar á bæ, t.d. tvær einkasýningar Helga Þorgils Friðjónssonar og Sveins Fannars Jóhannsson.

Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Væri ég / Sigríður Thorlacius, Karl Olgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson, Róbert Þórhallsson, Ólafur Hólm Einarsson, Jóel Pálsson og Strokkvartettinn Siggi. (Björgvin þór Valdimarsson, texti Elín Dungal)

Sunday Morning / Velvet Underground (Lou Reed)

Án þín / Trúbrot (Þorsteinn Eggertsson & Eddie Holland)

My Ever Changing Moods / The Style Council (Paul Weller)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,