Hljóðvegur 1

Steiney heimsækir Húsavík, umdeilt lyfjapróf og Lamine Yamal

Steiney var á flakki um Húsavík í dag í brakandi blíðu. Á Eurovision-safninu hitti hún Örlyg Hnefil Örlygsson, sem sagði henni hvað væri fram undan á safninu. Í Mærugerði heimsótti hún Huldu Jónasdóttur sem er orðinn fræg fyrir bleiku skreytingarnar sínar í aðdraganda Mærudaga. Því næst fór Steiney á tjaldsvæðið og hitti þar góðan hóp af fólki sem hélt stemningunni uppi.

Tadej Pogačar leiðir Tour de France hjólreiðakeppnina þegar 15 dagleiðir eru baki. Næstu daga verður hart barist um efstu sætin en Jonas Vingegaard verður ekki hluti af þeirri keppni en hann varð draga sig úr leik í gær eftir hafa slasast á hendi við harkalegt fall. Nóttina fyrir keppni hafði Daninn verið vakinn klukkan tvö til taka lyfjapróf. Sérfræðingar telja ekki útilokað það hafi haft áhrif á frammistöðu hans. Þorsteinn Ásgrímsson Melén, aðstoðarfréttastjóri mbl.is og áhugamaður um hjólreiðar, var á línunni og fór yfir málin.

Í gær varð spænska karlalandsliðið heimsmeistari í knattspyrnu í annað sinn. Lamine Yamal, einn efnilegasti leikmaður liðsins - og jafnvel heims, er orðinn bæði Evrópu- og heimsmeistari, aðeins nítján ára gamall. En hvaðan kemur þessi drengur og hver er saga hans? Karen Kjartansdóttir hefur kynnt sér vel sögu þessa bráðefnilega drengs og sagði okkur frá henni.

Birt

20. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,