Vikan botnuð, útvarpskona í sviflínu og líf og fjör á Austurlandi
Þátturinn byrjar á nýjum lið sem kallast Botnum vikuna. Dagur Ágústsson er hagyrðingur vikunnar en hann flutti fyrri part sem viðmælendur og hlustendur botnuðu.
Hólmfríður og Jóhann Alfreð voru á flakki.
Hólmfríður var á ferð og flugi um Suðurlandið en Jóhann Alfreð hitti góða viðmælendur á Egilsstöðum. Þar hitti hann þá Þorstein Bergsson, leiðsögumann og rithöfund og Stefán Boga Sveinsson á héraðsskjalasafni Austfirðinga. Þeir tóku stöðuna á sumrinu fyrir austan, ræddu um nýtt minnismerki um Naddodd, landnámsmann á Fáskrúðsfirði, og botnuðu vikuna.
Jakob Birgisson og Snædís Snorradóttir hittu einnig Jóhann. Snædís er verkefnastjóri hátíðarinnar Ormsteiti og Jakob flakkar nú um landið með nýtt uppistand.
Þá hitti Jóhann á hljómsveitina Hipsumhaps, sem gaf út nýja plötu á dögunum og hélt tónleika í Fjarðarborg um helgina.
Steiney stýrði svo skútunni úr Efstaleiti þar sem Hugleikur Dagsson kom í heimsókn.
Birt
3. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.