18:00
Kvöldfréttir útvarps
Valdaskipti í Bretlandi, þjóðaratkvæði um ESB-viðræður, Polgar afþakkar forsetaembætti

Fréttir

Fréttir

Andy Burnham, nýskipaður forsætisráðherra Bretlands, þarf ekki aðeins að standa sig vel í embætti heldur einnig vinna næstu kosningar, að mati Alastair Campbell stjórnmálaskýranda. Hann telur Burnham ætla að vinna að sömu stefnumálum og forveri hans en beita öðrum aðferðum.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um að hefja á ný viðræður við Evrópusambandið hefst eftir slétta viku og undirbúningur kominn vel á veg. Allir íslenskir ríkisborgarar eldri en átján ára geta greitt atkvæði.

Skákmeistarinn Judit Polgar hefur afþakkað boð um að verða næsti forseti Ungverjalands. Hún telur sig ekki hafa þann styrk sem þarf til að axla þá sögulegu ábyrgð að sameina sundraða þjóð.

Færri Bandaríkjamenn komu til Íslands í júní en á sama tíma í fyrra. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir áhuga þeirra á landinu virðast hafa minnkað.

Bandaríkjamaður hefur tekið flugvél á leigu hér á landi og ætlar að bjóða fólki að upplifa lengsta mögulega almyrkva í heiminum. Tvö sæti í vélinni eru föl og kosta nokkur hundruð þúsund hvort um sig.

Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,