Hvað eru barnvæn sveitarfélög?
Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu…
Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.
Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.
Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstjórn.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.