Hvað eru barnvæn sveitarfélög?
Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu…
Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land.
Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.