Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta
Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum…
Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins.
Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.
Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.