Hvað eru barnvæn sveitarfélög?
Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu…
Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.
Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.