
Víðsvegar
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu í samstarfi við íslensk sveitarfélög. En hvað nákvæmlega eru barnvæn sveitarfélög? Og hvenær byrjaði þetta verkefni?
Viðmælendur:
Marín Rós Eyjólfsdóttir verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF.
Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir ungmennaráðsfulltrúi hjá Akureyrarbæ.
Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagastrandar.
Auk þess heyrast stutt hljóðbrot og viðtöl við ungmenni úr ólíkum ungmennaráðum sveitarfélaganna.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.