Lesið úr bókum eftir Hannes J. Magnússon
Áfram er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar starfaði við Barnaskóla Akureyrar, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri á árunum…
Í þættinum er rætt við Jón Sigurðsson á Húsavík, fæddan árið 1923 á Arnarvatni í Mývatnssveit, um störf hans við vegavinnu og vegagerð.
Jón hóf störf sem verkamaður við vegagerð í Mývatnssveit, þar sem unnið var með haka og skóflu. Síðar varð hann verkstjóri hjá Vegagerðinni á Húsavík og gegndi því starfi í 17 ár.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. janúar 2010.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.