Lesið úr bókum eftir Hannes J. Magnússon
Áfram er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar starfaði við Barnaskóla Akureyrar, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri á árunum…
Í þættinum er fjallað um Tryggva Emilsson, verkamann og rithöfund, sem tók virkan þátt í baráttu verkalýðsfélaga fyrir bættum kjörum, bæði á Akureyri og síðar með Verkamannafélaginu Dagsbrún eftir að hann flutti suður.
Lesið er úr þremur köflum í bók hans Baráttan um brauðið, sem kom út hjá Máli og menningu árið 1978. Kaflarnir nefnast „Krossanes“, „Fyrsta kröfugangan“ og „Sláturhúsdeilan“.
Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 1. maí 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.