Lesið úr bókum eftir Hannes J. Magnússon
Áfram er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar starfaði við Barnaskóla Akureyrar, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri á árunum…
Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki ókunnur árinni. Hann var nokkur ár á skútum í upphafi síðustu aldar. Eftir að hann steig frá borði og hélt til listnáms fékkst hann þó lítið við sjómennsku. Í ágúst 1959 ýtti hann fari sínu út á Selfljótið og sigldi sjóleiðina alla leið að Bakkagerði í Borgarfirði, nær 30 km leið. Kjarval var þá 73 ára. Í þættinum segir frá þessari siglingu Kjarvals á fari sínu, Gullmáfinum.
Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. september 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.