Lesið úr bókum eftir Hannes J. Magnússon
Áfram er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar starfaði við Barnaskóla Akureyrar, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri á árunum…
Í þættinum er fjallað um Sveinbjörn Jónsson (1896–1982), sem fæddist í Svarfaðardal og ólst upp í Ólafsfirði. Hann menntaði sig í Noregi og var brautryðjandi á sviði nýrrar byggingartækni, hitaveitu og einangrunar húsa. Í þættinum segir frá uppvexti hans, menntun og starfsárum fyrir norðan.
Lesið er úr bókinni Byggingarmeistari í stein og stál, sem kom út hjá Ofnasmiðjunni og Fjölvaútgáfunni árið 1996. Höfundar bókarinnar eru Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson.
Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. desember 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.