
Sagnaslóð
Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson
Í bókinni Sagnir Jakobs gamla eru sagnir sem Þorsteinn Erlingsson (1858-1914) skráði eftir Jakobi Aþanasíussyni( 1826- 1915) sem var kunnur sagnamaður á sinni tíð. Guðmundur Gíslason Hagalín bjó sögur þessar til prentunar. Í þættinum er sögur af Gísla Gunnarssyni, kunnum formanni við Breiðafjörð og Magnúsi, sem hafði viðurnefnið sálarháski og var ekki síður kunnu þó fyrir annað væri. Þar er einnig sagt frá Erlendi, sem vinnumaður var hjá Bjarna Thorarensen. Erlendur var mikill kaffisvelgur og hafði það örlagaríka afleiðingu í för með sér.
Þátturinn var frumfluttur 30.október 2009
Sagnir Jakobs gamla/Þorsteinn Erlingsson/Rvík 1933 34.00
Lesari með umsjónarmanni Sigríður Kristín Jónsdóttir 130563 5039 22,00
Tónlist;
Sólskríkjan/Jón Laxdal/Þorsteinn Erlingsson/
Ranveig Fríða Bragadóttir/Jónas Ingimundarson.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.