Hörður Torfason
Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög.
Í Rokklandi dagsins er rifjaður upp þáttur frá 2014 þar sem Stuðmennirnir Valli, Kobbi, Egill og Bjóla segja frá tiluðr plötunnar Tivoli sem er önnur plata Stuðmanna og kom út haustið 1976.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson