Rokkland

Sigur Rós og Takk 20 ára

Sigur Rós hélt núna í vikunni ferna tónleika í Royal Albert hall í London með London Contemporary Orchestra. Royal Albert hall sem Bítlarnir minnast á í laginu A day in the life

Royal Albert hall sem var tekin í notkun árið 1871 og var vígð af Viktoríu drottningu enda er nafnið komið frá eiginmanninum Albert prins. Og þarna voru strákarnir okkar fjögur kvöld í röð og allt uppselt.

Um þessar mundir er platan þeirra sem heitir Takk líka 20 ára og Rokkland vikunnar er endurunnið upp úr þætti númer 493 frá 4. september 2005 þegar Takk platan var splunkuný.

Birt

5. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Fyrsti þáttur Rokklands fór í loftið á Rás 2 þann 7. október 1995.

Ólafur Páll Gunnarsson hafði verið tæknimaður á Rás 2 í um fjögur ár áður en hann fékk tækifæri til spreyta sig við hljóðnemann. Aðdragandinn var hann kom upprifinn af Glastonbury-hátíðinni á Englandi árið 1995 eftir hafa verið þar gestur BBC. Hann fjöldan allan af hljómsveitum og listamönnum spila: Plant & Page, Pulp, Oasis, Jeff Buckley, PJ Harvey, Verve, Supergrass o.fl.. Upp úr þessu fékk Óli Palli prufa gera tvo tveggja tíma langa þætti um Glastonbury-hátíðina (sem á þessum tíma var næstum algjörlega óþekkt fyrirbæri hér á landi) og í kjölfarið kom Rokkland.

Þátturinn var 50 mínútur til byrja með en varð svo 110 mínútur rúmu ári eftir hann fór af stað. Í dag eru liðin um 13 ár frá því þetta hófst, u.þ.b. 600 þættir eru baki og fjöldi hljómsveita og listamanna sem hann hefur kynnt og fjallað um eru a.m.k. 1700. Óla reiknast það til á þessum 13 árum hafi u.þ.b. 400 sólarhringar af lífi hans farið í Rokklandið.

Rokkland er á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum frá kl. 16.10 – 18.00 og er svo endurtekið á þriðjudagskvöldum frá kl. 22.10 – 24.00. Þar fyrir utan er hægt hlusta á vefnum www.ruv.is tvær vikur aftur í tímann.

<a href=mailto:[email protected]>Senda Ólafi Páli póst</a>

Þættir

,