Rokkland

Cell 7, Stairway to Heaven, Jóga, Joni, Blindsker, Oyama

Cell 7 Ragna Kjartansdóttir var senda frá sér þriðju og persónulegustu plötuna sína. Þar syngur hún og rappar um ástina og lífið sambandsslit og finna ástina upp á nýtt sem fullorðin manneskja. Cell 7 er gestur Rokklands.

Svo förum við aðeins yfir 3 af lögunum sem verða flutt á Rokklands afmælistónleikunum í Hofi Á Akureyri 1. nóvember nk. Eitt eftir Joni Mitchell, eitt eftir Bubba skoðum aðeins söguna á bakvið lögin auk þess sem útsetjarar laganna segja aðeins frá, þau Þórður Magnússon sem útsetti Bubba lagið og Sóley Björk Einarsdóttir sem útsetti Joni. þorvaldur Bjarni Þorvaldsson útsetti Led Zeppelin meistaraverkið Stairway to Heaven og hann segir frá auk þess sem við skoðum sögu lagsins.

Við heyrum líka í hljómsveitinni Oyama í std. 12

Birt

26. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Fyrsti þáttur Rokklands fór í loftið á Rás 2 þann 7. október 1995.

Ólafur Páll Gunnarsson hafði verið tæknimaður á Rás 2 í um fjögur ár áður en hann fékk tækifæri til spreyta sig við hljóðnemann. Aðdragandinn var hann kom upprifinn af Glastonbury-hátíðinni á Englandi árið 1995 eftir hafa verið þar gestur BBC. Hann fjöldan allan af hljómsveitum og listamönnum spila: Plant & Page, Pulp, Oasis, Jeff Buckley, PJ Harvey, Verve, Supergrass o.fl.. Upp úr þessu fékk Óli Palli prufa gera tvo tveggja tíma langa þætti um Glastonbury-hátíðina (sem á þessum tíma var næstum algjörlega óþekkt fyrirbæri hér á landi) og í kjölfarið kom Rokkland.

Þátturinn var 50 mínútur til byrja með en varð svo 110 mínútur rúmu ári eftir hann fór af stað. Í dag eru liðin um 13 ár frá því þetta hófst, u.þ.b. 600 þættir eru baki og fjöldi hljómsveita og listamanna sem hann hefur kynnt og fjallað um eru a.m.k. 1700. Óla reiknast það til á þessum 13 árum hafi u.þ.b. 400 sólarhringar af lífi hans farið í Rokklandið.

Rokkland er á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum frá kl. 16.10 – 18.00 og er svo endurtekið á þriðjudagskvöldum frá kl. 22.10 – 24.00. Þar fyrir utan er hægt hlusta á vefnum www.ruv.is tvær vikur aftur í tímann.

<a href=mailto:[email protected]>Senda Ólafi Páli póst</a>

Þættir

,