Víðsjá

Andrými Jónu Hlífar, Svarthol Tunglsins og heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur

„Ég held líf okkar á mörgum tíðnisviðum. Það er einhver tíðni sem ljóðið tilheyrir þar sem ekkert annað er. Ef maður sinnir ekki þessari tíðni verður lífið fátækara og leiðinlegra," segir Ragnar Helgi Ólafsson, en þeir Dagur Hjartarson hafa síðustu tólf ár staðið fyrir ýmsum gjörningum, viðburðum og útgáfu undir formerkjum Tunglsins. Félgarnir koma við í hljóðstofu í Víðsjá dagsins, segja okkur frá nýrri ritröð ljóðaþýðinga sem þeir kalla Svarthol og velta fyrir sér tilvist ljóðsins. Við lítum líka við á einkasýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur, Alverund, í Hafnarborg, og heyrum heimspekihugleiðingu Freyju Þórsdóttur, sem þessu sinni veltir fyrir sér hverfulleika, varanleika, minni og meðvitund.

Frumflutt

6. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,