Víðsjá

Leyft öllum aldurshópum

Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis

Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles sendi frá sér á 6. áratugnum.

Tumi Árnason flytur stutta samantekt á Jazzhátíð Reykjavíkur og dregur saman það sem stóð upp úr, sem og bendir á það sem betur mætti fara.

Við rifjum upp eina af ótal mörgum Miles-Davis-flökkusögum sem við gerðum skil í Víðsjá laust eftir að píanóleikarinn Herbie Hancock hlaut Pólar tónlistarverðalunin mikilsvirtu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,