Víðsjá

Ísmús, Síðasta sumar Klingsors og Fuglamál

Þjóðfræðingurinn Júlíana Þóra Magnúsdóttir átti heima í nokkur ár í kjallara Árnastofnunar þar sem hún hlustaði á dýrmætar upptökur úr forneskjunni, skráetti og flokkaði. Sagnahefðir kvenna sem enduróma sögur torbæjanna hafa löngum heillað hana og í doktorsrannsókn sinni greindi hún sagnir 200 kvenna sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði og varðveittar eru í Árnastofnun. Júlíana Þóra verður gestur okkar i dag, en hun er ein þeirra sem mun taka til máls á málþingi í Eddu næstkomandi laugardag í tilefni 25 ára afmælis Ísmús vefsins, þar sem þessar og miklu fleiri upptökur er að finna.

En þetta er mikil afmælisvika, það er ekki bara Ísmús vefurinn sem fagnar 25 ára afmæli, og svo Sjónvarpið 60 ára afmæli, heldur fagnar þessi þáttur, Víðsjáin, 30 ára afmæli á morgun. Af því tilefni ætlum við að fara í smá naflaskoðun í þætti morgundagsins en tökum kannski forskot á sæluna í þessum þætti í tengslum við fyrr nefndan vef Ísmús.

Gauti Kristmanns rýnir í glænýja þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar á Síðasta sumri Klingsors eftir þýska rithöfundinn Hermann Hesse. Síðan mun Sölvi Halldórsson rýna í skáldsögu sem kom út í vor; Fuglamál eftir Mörtu Maríu Jónsdóttur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,