Víðsjá

Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni

Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri kom hljóðverinu á laggirnar í upphafi 21. aldar og út frá starfseminni spratt tónlistarútgáfan Bedroom Community. Útgáfan fagnar 20 ára starfsafmæli og Valgeir reifar sögu hennar í þætti dagsins.

Elías Rúni hefur um árabil starfað sem teiknari og myndlýsir og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir. Í sinni nýjustu bók, sjálfsævisögulegu myndasögunni Fyrsta skiptið, er hann á mun persónulegri nótum en áður. Þar segir Elías söguna af því að koma út sem trans og lýsir sorginni og gleðinni sem sú umbreyting felur í sér. Elías er gestur Víðsjár undir lok þáttar.

Trausti Ólafsson rýnir í óperuna 27 og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsögu Gerðar Kristnýjar, Míkadó.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,