Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan
Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn…
Víðsjá dagsins verður tileinkuð vinnu í víðum skilningi. Vinna er nefnilega ekki bara störfin sem við gegnum heldur getur hún verið nánast hvað sem við tökum okkur fyrir hendur, ennfremur er hún efnahagsleg og þekkingarfræðileg undirstaða mannlegra samfélaga. Í þættinum veltum við meðal annars fyrir okkur tengslum vinnu og sjálfsmyndar, kulnun, borgaralaunum og andvinnuhreyfingunni.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.