Kvöldfréttir útvarps

Khourani grunaður um sprengjuhótanir á Íslandi, Stjörnugrís um myndskeið, sprengjuhótanir í garð sjónvarpsstöðva, rekstur Landbúnaðarháskólans, mótmæli gegn gagnaverum

Talið er að Mohamed Kourani sé á bak við sprengjuhótanir sem hafa borist stofnunum og fyrirtækjum hérlendis síðustu vikur. Hótanir voru sendar á leikskóla og Keflavíkurflugvöll í gær.

Forstjóri Stjörnugríss segir að slæmt ástand þeirra dýra sem sjást í myndskeiði Einars Loga Péturssonar megi rekja til innbrots hans í svínabúið í vor. Athæfi hans í búinu sé ekki í samræmi við yfirlýst markmið um dýravernd.

Sprengjuhótunum var í dag beint að nokkrum sjónvarpsstöðvum í Evrópu. Í tölvupósti til írska ríkissjónvarpsins segir að þetta sé aðeins byrjunin.

Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans er ógnað vegna 25 prósenta skerðingar á fjármögnun. Háskólaráðherra segir niðurskurð ekki yfirvofandi og vill finna lausn.

Mótmælendur brutust inn á byggingarsvæði gagnavers Microsoft í Amsterdam í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,