
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Hótað var að sprengja yfir 20 farþegaflugvélar í Evrópu í dag. Engar sprengjur hafa fundist. Hótun barst til Keflavíkurflugvallar en óvíst er hvort hún tengist hinum hótununum
Utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, sem var enn krafinn svara á Alþingi í dag um Landsvirkjun, segist styðja fjármálaráðherra að fullu.
Meirihluti þeirra sem fengu framfærsluaðstoð frá borginni í fyrra er með erlent ríkisfang, flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma Palestínumenn, þar næst fólk frá Venesúela og þar á eftir Pólverjar.
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um fjóra milljarða vegna vanefda við byggingu Barnaskóla Kársness er í greiðslustöðvun.

Fréttir.