
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Fulltrúi Ungheilla, ungmennaráðs Barnaheilla, segir nemendur áhyggjufulla vegna boðaðra breytinga menntamálaráðherra á einkunnagjöf í tíunda bekk. Hugmyndin sé góð en tímaramminn of knappur.
Stéttarfélagið Efling gagnrýnir Mosfellsbæ harðlega fyrir hvernig staðið er að eftirliti með útvistaðri ræstingaþjónustu í bænum. Bæjarstjóri segist taka öllum ábendingum alvarlega.
Dýraeigendur á Suðausturlandi hafa verið án dýralæknisþjónustu í rúma tvo mánuði og þurfa jafnvel að aka langar leiðir með dýr sem þurfa bráðahjálp. Formaður Dýralæknafélags Íslands segir ekkert hafa þokast í málinu.
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Fréttir.