Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. nóvember 2026

Karlmaður sem braust inn í svínabú Stjörnugríss hefur birt myndband af innbrotinu á samfélagsmiðlum. Þar sjást skjálfandi og dauðir grísir og svín með legusár.

Hlutabréfamarkaðir um allan heim tóku dýfu í gær og í morgun eftir erfiðan dag á mörkuðum vestanhafs. Fjárfestar óttast að sigur Demókrata í kosningunum hafi áhrif á framtíð gervigreindar og gagnavera.

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað mikið en skilar sér ekki í vasa íslenskra neytenda, segir framkvæmdastjóri FÍB.

Nytjamarkað ABC, sem brann í nótt, þarf að opna aftur sem fyrst, segir framkvæmdastjórinn. Hann sé mikilvægur hjálparstarfi barna og íslensku samfélagi.

Sonur manns sem sakar Írisi Helgu Jónatansdóttur um umsáturseinelti segir hana hafa sent sér óhugnanleg skilaboð á samfélagsmiðlum og reynt að gera lífið eins erfitt og hægt sé.

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Norðurþings hefur sagt upp vegna ágreinings um vindorkuver á Hólaheiði.

Samkeppniseftirlitið segir ríkar vísbendingar um að miðasölufyrirtækið TIX sé í markaðsráðandi stöðu og hefur beint tilmælum til þess að athuga samninga sína.

Þá fjöllum við um tarantúlu-smygl og leik íslenska karlalandsliðiðsins í handbolta gegn Eistlandi á sunnudaginn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,