
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Sprengjuhótunum hefur verið beint að fjölda farþegaflugvéla í Evrópu í morgun. Engar sprengjur hafa fundist. Sérfræðingar telja að markmiðið sé að trufla mikilvægi innviði
Stjórnskipunar - og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar. Starfandi formaður nefndarinnar telur of mikið gert úr málinu en stjórnarandstöðuþingmaður segir það alvarlegt
Verkalýðsfélög og námsmenn boða mótmæli í Frakklandi í dag. Lögreglan er með mikinn viðbúnað .
Seðlabanki Paragvæ hefur yfirtekið stærsta banka landsins og viðskiptavinir komast ekki í sparifé sitt. Krafist er affsagnar forseta landsins. Hann seldi hlutabréf sín í bankanum í fyrra,
Lögreglan á Ísafirði hefur verið í bráðabirgðahúsnæði í eitt og hálft ár frá því að mygla fannst á lögreglustöðinni. Formaður Lögreglufélags Vestfjarða segir það óboðlegt.
Cristiano Ronaldo hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Hann spilaði 234 landsleiki fyrir Portúgal.

Útvarpsfréttir.